Carlo Azeglio Ciampi
10. forseti Ítalíu
Carlo Azeglio Ciampi (f. 9. desember 1920; d. 16. september 2016) var tíundi forseti Ítalíu. Hann var áður stjórnarformaður ítalska seðlabankans, forsætisráðherra í starfsstjórn frá apríl 1993 til maí 1994 og síðan fjármálaráðherra í ríkisstjórnum Romanos Prodis og Massimo D'Alema frá 1996 til 1999.
![](https://cdn.statically.io/img/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c4/Ciampi_ritratto.jpg/220px-Ciampi_ritratto.jpg)
13. maí 1999 var hann kjörinn forseti lýðveldisins af ítalska þinginu (sameinuðu þingi fulltrúadeildar og öldungadeildar) og var annar sem hlotið hefur þá tvo þriðju hluta atkvæða sem til þarf í fyrstu umferð. Hinn var Francesco Cossiga sem var kosinn forseti 1985.
Fyrirrennari: Giuliano Amato |
|
Eftirmaður: Silvio Berlusconi | |||
Fyrirrennari: Oscar Luigi Scalfaro |
|
Eftirmaður: Giorgio Napolitano |