Beint í aðalefni

Upplýsingar varðandi COVID-19

Fyrir ferðalanga

Margir gististaðir á Booking.com birta núna nákvæmari upplýsingar um heilbrigðis- og öryggisráðstafanir sem þeir gera. Má þar nefna ráðstafanir varðandi samskiptafjarlægð og vinnureglur um þrif á gististaðnum. Upplýsingarnar eru sýndar á skýran og samræmdan hátt til að auðvelda þér að bera saman gististaði og finna þann rétta fyrir þig. Einnig getur þú kíkt á heildarumsagnareinkunn gististaðarins fyrir hreinlæti sem byggir á reynslu fyrri gesta.

Heilsa og öryggi

Öryggisatriði
  • Starfsfólk fylgir öllum öryggisreglum í samræmi við leiðbeiningar yfirvalda á staðnum
  • Sameiginleg ritföng og prentað efni, svo sem matseðlar, tímarit, pennar og pappír fjarlægt
  • Handsótthreinsir í gistirýmum og á helstu svæðum
  • Eftirlit haft með heilsufari gesta
  • Sjúkrakassi til staðar
  • Aðgangur að heilbrigðisstarfsfólki
  • Gististaðurinn sér gestum fyrir hitamælum
  • Gestir hafa aðgang að andlitsgrímum
  • Lofthreinsitæki
Samskiptafjarlægð
  • Snertilaus inn-/útritun
  • Hægt að greiða án reiðufés
  • Samskiptafjarlægð er virt
  • Snjallsímaapp fyrir herbergisþjónustu
  • Hlífar eða aðgangshindrun á milli starfsfólks og gesta á viðeigandi svæðum
  • Sérloftkæling fyrir gistirýmið
Þrif og sótthreinsun
  • Notuð eru hreinsiefni sem virka gegn kórónaveirunni
  • Rúmföt, handklæði og þvottur þvegin samkvæmt viðmiðunarreglum heilbrigðisyfirvalda á staðnum
  • Gistirýmið er sótthreinsað á milli dvala
  • Gistirýmið er innsiglað eftir þrif
  • Gististaðurinn er þrifinn af ræstingarþjónustu
  • Gestir geta afþakkað þrif á gistirými meðan á dvöl þeirra stendur
  • Handspritt
Öryggi í kringum mat og drykk
  • Samskiptafjarlægð þar sem setið er og borðað
  • Hægt að fá mat sendan í gistirými
  • Allir diskar, hnífapör, glös og annar borðbúnaður hefur verið sótthreinsaður
  • Morgunverður í ílátum til að taka með
  • Matur er afhentur í öruggum umbúðum

Almennar ferðaráðleggingar

Auk þess að skoða öryggis- og hreinlætisráðstafanir gististaðarins og umsagnir annarra gesta eru hér nokkrar ráðstafanir sem við mælum með að þú gerir:

Par með grímur fer upp fjall í kláf

Kynntu þér ferðatakmarkanir

Áður en þú bókar ferðina skaltu athuga hvaða ferðatakmarkanir gilda núna í heimalandi þínu og löndunum sem þú ætlar að ferðast til. Það er nauðsynlegt jafnvel þó að þú sért aðeins að ferðast í gegnum tiltekið land til að komast á endanlegan áfangastað.

Uppfærðu minnislistann fyrir ferðina

Þegar þú pakkar fyrir ferðina skaltu íhuga að taka með þér andlitsgrímur, handspritt, sótthreinsiklúta og hitamæli.

Kynntu þér ástandið varðandi kórónaveiruna (COVID-19) á staðnum

Áður en ferðalagið hefst skaltu kynna þér ástandið varðandi kórónaveiruna og sérstakar reglur sem þú þarft að vita af, svo sem um notkun almannarýma. Einnig er mikilvægt að vita hvernig þú getur nálgast heilbrigðisþjónustu á staðnum ef nauðsyn krefur. Ef þú hefur ennþá einhverjar spurningar þegar á staðinn er komið getur þú alltaf spurt starfsfólk á gististaðnum.

Haltu öruggri fjarlægð

Veldu alltaf netinnritun og greiðslur án reiðufés á meðan þú skoðar þig um á áfangastaðnum. Fylgdu fyrirmælum yfirvalda á staðnum og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um samskiptafjarlægð.

Fylgstu með fréttum.

Fylgstu með nýjustu fréttum af ferðatakmörkunum og ráðleggingum yfirvalda. Hafðu í huga að þær geta breyst meðan á ferðalaginu stendur.

Vaktaðu eigin heilsu

Ef þú finnur fyrir einhverjum einkennum sem eru tengd við kórónaveiruna meðan á ferðalaginu stendur skaltu einangra þig, láta starfsfólk gististaðarins vita og hafa samband við heilbrigðisyfirvöld á staðnum til að fá nánari upplýsingar.


Fyrir samstarfsaðila

Við höfum útbúið gagnlegar viðmiðunarreglur og tól til að aðstoða þig við að minnka mögulega heilsufarsáhættu og tryggja velferð starfsfólks og gesta á gististaðnum þínum.

Gestgjafi innritar nýjan gest á hótelið sitt, báðir aðilar eru með grímu

Veittu gestum hugarró með heilbrigðis- og hreinlætisráðstöfunum

Þetta er yfirlit yfir þær heilbrigðis- og hreinlætisráðstafanir sem þú getur sýnt að þú hafir gert á Booking.com. Einnig eru upplýsingar um það hvernig best er að koma þeim á framfæri til væntanlegra gesta svo að þeir viti hverju þeir geti búist við þegar þeir gista á gististaðnum þínum.

Nánari upplýsingar

Hreinlæti og öryggi á gististaðnum þínum

Þetta eru viðmiðunarreglur til að styðjast við svo að þú getir áfram verndað og gætt öryggis og heilbrigðis starfsfólks og gesta gististaðar þíns.

Nánari upplýsingar

Partner Hub-síðan

Frekari gögn og upplýsingar er að finna á Partner Hub-síðunni.

Fara á Partner Hub-síðuna

Gagnlegir hlekkir

Vantar þig einhverjar upplýsingar? /

Takk fyrir að deila


Þessi grein er eingöngu ætluð til upplýsingar og felur ekki sér neina lögfræðilega ráðgjöf, réttindi eða ábyrgð. Vinsamlegast hafðu í huga að þú gætir þurft að gera viðbótarráðstafanir í sérstökum tilfellum.