Otto Hahn
Útlit
![](https://cdn.statically.io/img/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9b/Otto_Hahn_%28Nobel%29.jpg/220px-Otto_Hahn_%28Nobel%29.jpg)
Otto Hahn (8. mars 1879 – 28. júlí 1968) var þýskur efnafræðingur og Nóbelsverðlaunahafi í efnafræði árið 1944. Hann var fyrstur til að kljúfa frumeindakjarna og hefur verið kallaður „faðir kjarneðlisfræðinnar“ og „upphafsmaður atómaldarinnar“. Tilraunirnar við kjarnaklof framkvæmdi Hahn í Berlín í Þýskalandi með aðstoðarmanni sínum, Lise Meitner. Árið 1955 hét hann á forystumenn þjóðanna að útrýma kjarnorkuvopnum. [1]