Pieter Zeeman
Útlit
![](https://cdn.statically.io/img/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a2/Pieter_Zeeman.jpg/198px-Pieter_Zeeman.jpg)
Pieter Zeeman (25. maí, 1865 – 9. október, 1943) var eðlisfræðingur sem lærði hjá Hendrik Lorentz og deildi nóbelsverðlaununum í eðlisfræði með honum fyrir uppgtötvun sína á Zeeman hrifunum.
Zeeman var fæddur í Zonnemaire, Hollandi. Hann var stúdent hjá Lorentz í Háskólanum í Leiden. Hann byrjaði að halda fyrirlestra við Leiden árið 1890. Árið 1896 bað Lorentz hann um að athuga áhrif segulsviðs á ljósuppsprettu og uppgötvaði hann þá það sem í dag er þekkt sem Zeeman hrifin. Þessi uppgötvun sannaði kenningu Lorentz um rafsegulgeislun.
Zeeman var settur prófessor í eðlisfræði við Háskólann í Amsterdam árið 1900. 1908 var hann síðan settur yfirmaður náttúruvísindadeildarinnar þar.
![](https://cdn.statically.io/img/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Pieter Zeeman.