Inhope eru regnhlífarsamtök ábendingalína í 42 löndum. Smelltu hér til að skoða verklagsreglur Inhope.
Karfan er tóm.
Allar tilkynningar til Ábendingalínunnar berast beint til lögreglunnar. Lögreglan geymir ekki persónuupplýsingar um þig í tengslum við tilkynningu þína. En ef þú gefur upp nafn, netfang eða símanúmer kann að vera haft samband við þig til að auðvelda rannsókn máls. Persónuupplýsingar sem gefnar eru upp í tilkynningum eru meðhöndlaðar í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Veldu þinn aldursflokk
Kynferðisofbeldi gegn börnum
Kynferðislegt ofbeldi gegn barni á netinu: Myndefni, texti eða annað sem sýnir eða lýsir kynferðislegu ofbeldi gegn barni og er á internetinu. Myndir sem sýna nekt barna á kynferðislegan hátt, myndir sem sýna börn í kynferðislegum stellingum þó þau séu ekki nakin, myndir sem hefur verið breytt og sýna eftir breytingu barn á kynferðislegan hátt. Sjá nánari skilgreiningu í umfjöllun um lög.
Kynferðisáreitni
Kynferðisleg áreitni gegn barni á netinu: Felur í sér særandi eða móðgandi kynferðislega hegðun. Á neti getur kynferðisleg áreitni verið með orðum, þ.e. kynferðislegar athugasemdir um útlit eða hegðun, eða uppástungur um kynlíf og hún getur verið táknræn, svo sem svipbrigði eða líkamleg tjáning sem gefa eitthvað kynferðislegt í skyn. Það telst kynferðisleg áreitni ef hegðun er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hún sé illa séð. Eitt tilvik getur einnig talist kynferðisleg áreitni ef það er alvarlegt.
Annars konar ofbeldi
Annarskonar ofbeldi gegn barni á netinu: Líkamlegt og andlegt ofbeldi sem ekki er af kynferðislegum toga.
Tæling
Tæling barns á netinu: Þegar einhver reynir að fá barn til kynferðislegra athafna með blekkingum, gjöfum eða á annan hátt.
Hótanir
Hótanir gegn barni á netinu: Hvers konar hótanir, svo sem hótanir um að skaða einhvern nákominn barninu ef það ekki gerir eitthvað, eins og að senda af sér nektarmynd. Einnig stundum kallað sextortion á ensku.
Neteinelti
Einelti gegn barni á netinu: Neteinelti er þegar símar, spjallforrit, tölvupóstar eða samfélagsvefir eru notaðir til að áreita, hóta eða ógna einhverjum endurtekið.
Boð um vímuefni eða áfengi
Boð um vímuefni eða áfengi til barna á netinu: Óheimilt er að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem eru yngri en 20 ára. Með öllu er óheimilt að afhenda eða hvetja börn til neyslu vímuefna.
Mansal
Með mansali er fólk þvingað út í starfsemi eða þjónustu eins og vændi, vinnubúðir, götubetl, heimilisvinnu, hjónaband, ættleiðingar, börn eru notuð sem hermenn o.s.frv.
Vændi
Það telst vændi þegar einstaklingur selur líkama sinn til samræðis eða annarra kynmaka. Á Íslandi er kaup á vændi ólöglegt. Þeim sem selur vændi verður ekki refsað. Vændisstarfsemi þar sem einhver hagnast á því að barn stundi vændi er refsiverð og er kynferðisofbeldi gegn barni.
Hatursorðræða
Erfitt er að skilgreina hatursorðræðu, en öll tjáning sem dreifir, hvetur til, stuðlar að eða réttlætir kynþáttahatur, útlendingahatur, gyðingahatur eða annars konar hatur sem byggist á umburðarleysi, þar á meðal umburðarleysi sem er tjáð með herskárri/óvæginni þjóðræknisstefnu/þjóðernishyggju eða þjóðhverfum sjónarmiðum, mismunun og fjandskap gegn minnihlutahópum, farandverkafólki og fólki af erlendum uppruna, má teljast til hatursorðræðu.
Inhope eru regnhlífarsamtök ábendingalína í 42 löndum. Smelltu hér til að skoða verklagsreglur Inhope.
Persónuupplýsingar sem gefnar eru í tilkynningum til Ábendingalínunnar eru meðhöndlaðar í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.